|
Ari Ólafsson eðlisfræðingur við Raunvísindastofnun Háskólans hlaut
verðlaun RANNÍS fyrir framlag sitt til vísindamiðlunar á Vísindavöku 22.
september 2006.
Ari hefur á undanförnum árum staðið fyrir námskeiðum fyrir
börn sem miða að því að kynna undur eðlisfræðinnar og auka áhuga og
skilning almennings á vísindum. Ari er vinsæll kennari og hefur sérstakt
lag á að gera eðlisfræðitilraunir skemmtilegar. Hann er einn upphafsmanna
námskeiða fyrir bráðger börn og átti frumkvæði að Tilraunahúsi, skemmti-
og fræðaseturs á sviði vísinda og tækni sem Háskóli Íslands, Orkuveita
Reykjavíkur og Kennaraháskóli Íslands standa að. Eðlisfræði í eldhúsinu,
þurrís sem slökkviefni, hamskifti efna, tónblær hljóðfæra, Van de Graaf
ævintýri, hitaloftbelgir og ljóstilraunir af ýmsum toga eru dæmi um
viðfangsefni Ara sem miða að því að opna almenningi sýn á þátt
eðlisfræðinnar í daglegu lífi.
Í nýlegri skýrslu OECD kemur fram að nemendur í raunvísinda- og
verkfræðigreinum séu of fáir hérlendis. Tilraunahúsi er ætlað að örva
skapandi nám barna með samspili leiks og tækni. Starfsemi þess mun
ennfremur styrkja kennslu á sviðum tækni og vísinda á öllum skólastigum.
|